Þó að ofbeldi, byssur, og sundurskotnir líkamar í bardaga í vöruhúsi séu yfir og alltumlykjandi í fyrstu stiklu fyrir nýjustu mynd Ben Wheathley, Free Fire, þá svífur húmorinn einnig yfir vötnum.
Myndin gerist árið 1978 og hefst á vopnaviðskiptum þar sem viðskiptavinurinn er eitthvað ósáttur við varninginn, og í framhaldi fer allt til andskotans.
Myndin er eins og fyrr sagði eftir High-Rise leikstjórann Ben Wheatley, og framleidd af engum öðrum en Martin Scorsese.
Free Fire var frumsýnd í gær á kvikmyndahátíðinni í Toronto í Kanada, TIFF.
Aðrir helstu leikarar eru Cillian Murphy, Brie Larson, Armie Hammer, Sharlto Copley, Sam Riley, Jack Reynor, Noah Taylor og Michael Smiley.
Myndin fer í almennar sýningar á næsta ári, en er ekki enn með skráðan frumsýningardag á Íslandi.
Sjáðu stikluna hér fyrir neðan og plakatið þar fyrir neðan: