Kvikmyndin Blue is The Warmest Color, eða Blár er heitasti liturinn, vann Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í gær, en það eru aðalverðlaun hátíðarinnar.
Franska leikkonan Audrey Tautou var kynnir kvöldins, en það var stjörnum prýdd dómnefnd sem valdi sigurvegarana.
Formaður dómnefndar var Steven Spielberg og með honum voru Óskarsverðlaunahafarnir Nicole Kidman, Ang Lee og Christoph Waltz, ásamt Daniel Auteuil, Cristian Mungiu, Lynne Ramsay, Vidya Balan og Naomi Kawase.
Verðlaunahafar eru eftirfarandi:
Gullpálminn ( Palme d’Or): Abdellatif Kechiche, Blue Is The Warmest Color
Grand Prix: Coen bræður, Inside Llewyn Davis
Besti leikstjóri: Amat Escalante, Heli
Besta handrit: Jia Zhangke, A Touch of Sin
Besta leikkona: Berenice Bejo, The Past
Besti leikari: Bruce Dern, Nebraska
Dómnefndarverðlaun: Hirokazu Kore-eda, Like Father, Like Son
Camera d’Or: Anthony Chen, Ilo Ilo