Íslenska streymisveitan Heima, sem rekin er af fjölmiðla – og fjarskiptafyrirtækinu Sýn, er komin í loftið.
Eins og segir á heimasíðu Sýnar er þar að finna perlur íslenskrar sjónvarpssögu á einum stað.
Stærstur hluti efnisins var upphaflega frumsýndur á Stöð 2 og Sýn en að auki verður í boði úrval efnis sem framleitt hefur verið í gegnum tíðina af Sagafilm, einu elsta og umfangsmesta framleiðslufyrirtæki landsins.

„Á Heima geturðu rifjað upp gamla góða tíma með ógleymanlegum þáttum á borð við Rétt, Ástríði og Stelpurnar. Þar er einnig að finna fjölbreytt skemmtiefni eins og Tekinn, Skítamix, Hæðina og Leitin að upprunanum,“ segir á heimasíðunni.
Safnið mun spanna fjóra áratugi af íslenskri sjónvarpsframleiðslu.
Heima er aðgengilegt í sjónvarpsþjónustu Sýnar og kostar 1.790 krónur á mánuði.






