Nafnið á annarri The Guardians of the Galaxy myndinni hefur verið opinberað. Leikstjórinn James Gunn sagði frá nafninu á Twitter síðu sinni í dag: „Já, opinbert heiti @Guardians framhaldsmyndarinnar er GUARDIANS OF THE GALAXY VOL. 2,” skrifaði Gunn sem bæði leikstýrði og skrifaði handrit að fyrri myndinni.
Yes, the official title for the @Guardians sequel is GUARDIANS OF THE GALAXY VOL. 2. Nice detective work, @colliderfrosty, etc! You got us!
— James Gunn (@JamesGunn) June 29, 2015
Þessi tegund heitis er algengari sem nafn á teiknimyndabókum en kvikmyndum sem gerðar eru eftir teiknimyndasögum, en líklega kemur hugmyndin að þessu nafni frá hljóðsnældu Star – Lord ( persóna Chris Pratt í myndinni ) með blönduðu efni, „Awesome Mix Vol. 1.“, sem kom mikið við sögu í fyrri myndinni.
Gunn staðfesti þessa frétt eftir að forstjóri Marvel, Kevin Feige, sagði óvart frá titlinum í viðtali við Collider kvikmyndavefinn, á blaðamannafundi fyrir Ant-Man.
Tökur á Guardians of the Galaxy Vol. 2 munu hefjast í febrúar-mars á næsta ári, samkvæmt Feige.