Á morgun (27. maí) kemur teiknimyndin Cloudy with a Chance of Meatballs út á DVD. Að mínu mati er hér um að ræða einhverja vanmetnustu, steiktustu og án nokkurs vafa fyndnustu teiknimynd undanfarinna ára sem mun ekki síður eiga erindi til fullorðna heldur en barna. Við héldum einmitt boðssýningu á henni fyrr á þessu ári þar sem salurinn var í hláturskasti nánast allan tímann. Ég stóðst ekki mátið að hafa samband við Senu og biðja um DVD eintök til að splæsa á okkar ástkæru notendur.
Leikurinn sem ég ætla að vera með núna er einfaldur að venju, og þið þurfið ekki að gera neitt annað en að svara laufléttri spurningu, sem er hér fyrir neðan bíóbrotið.
Spurningin er þessi:
Hverjir tala fyrir persónurnar sem sjást í þessari senu (apinn er ekki talinn með)
Þið sendið mér svarið á tommi@kvikmyndir.is (eins og alltaf). Ég dreg síðan úr réttum svörum á morgun og hef samband við vinningshafa.
T.V.