Hin ævisögulega Straight Outta Compton var vinsælasta bíómyndin á Íslandi um helgina, en hún var frumsýnd í síðustu viku hér á landi. Myndin hefur verið í þrjár vikur í röð á toppi bandaríska listans.
Myndin fjallar um rapphljómsveitina úr Compton hverfinu í Los Angeles, NWA, sem gerði meðal annars lagið Fuck the Police frægt.
Í öðru sæti listans er einnig ný mynd, The Man from U.N.C.L.E., en það er njósna-gaman-spennumynd eftir Guy Ritchie með gamansömum undirtóni. Þriðja sætið vermir svo toppmynd síðustu viku, grínmyndin Vacation.
Ein önnur ný mynd er á listanum, hin djarfa Love, sem er bönnuð innan 18 ára og sýnd í Bíó Paradís.
Sjáðu listann í heild sinni hér fyrir neðan:
asf
asdf