Í gær tilkynnti FX sjónvarpsstöðin að fyrsti þátturinn í þriðju þáttaröð sjónvarpsþáttanna Fargo yrði frumsýndur 19. apríl nk.
Fyrstu tvær þáttaraðirnar nutu mikilla vinsælda, og ríghéldu manni í sjónvarpssófanum.
Þættirnir munu gerast árið 2010, og með helstu hlutverk fara Ewan McGregor sem tveir tvíburar, Carrie Coon leikur lögreglustjóra að nafni Gloria Burgle, Mary Elizabeth Winstead úr myndinni 10 Cloverfield Lane leikur kærustu tvíburans sem nýtur minni velgengni en hinn, og David Thewlis er dularfullur einfari og sannur auðvaldssinni.
Samkvæmt fréttum þá er óhætt að búa sig undir drungalega og ískalda spennu.