Eftirlifandi meðlimir Monty Python hafa boðað til blaðamannafundar í London á fimmtudaginn.
Búast má við einhvers konar endurkomu grínhópsins, sem samanstendur af John Cleese, Terry Gilliam, Eric Idle, Terry Jones og Michael Palin.
Það yrði í fyrsta sinn í þrjá áratugi sem allir meðlimirnir starfa saman.
Í fyrra var greint frá því að tökur á nýrri kvikmynd frá Monty Python, Absolutely Anything, ættu að hefjast í byrjun þessa árs en ekkert varð af því.
Grínhópurinn er þekktur fyrir sjónvarpsþættina Monty Python´s Flying Circus og kvikmyndir á borð við Monty Python and the Holy Grail og Life of Brian.
Síðasta alvöru samstarfsverkefni hópsins með öllum sex upphaflegu meðlimunum var Monty Python´s The Meaning of Life sem kom út 1983. Sex árum síðar lést einn sexmenninganna, Graham Chapman.