Nýtt atriði hefur verið birt úr verðlaunavestranum Slow West þar sem Michael Fassbender fer með hlutverk útlagans dularfulla Silas sem ferðast með ungum manni, sem leikinn er af Kodi Smit-McPhee, sem leitar að konunni sem hann elskar. Myndin gerist snemma á 19. öldinni í Bandaríkjunum.
Það er ljóst miðað við atriðið sem við sjáum hér að neðan að maður messar ekki við Michael Fassbender!
Leikstjóri er John Maclean.
Slow West verður frumsýnd 26. júní nk. í Bretlandi, en hún hefur verið að ferðast á milli kvikmyndahátíða í Bandaríkjunum síðustu mánuðina eftir að hún vann til World Cinema Jury Prize: Dramatic Winner verðlaunanna á Sundance hátíðinni þar í landi í janúar.
Sjáðu stiklu úr myndinni hér fyrir neðan: