Shane Black leikstjóri Iron Man 3 segir að Robert Downey Jr. aðalleikari myndarinnar, muni snúa aftur í fjórðu myndina, Iron Man 4.
Black lýsti þessu yfir við frumsýningu Iron Man 3 í London í gær, fimmtudag. Í samtali við breska dagblaðið The Evening Standard sagði Black: „Ég held að hann muni snúa aftur í eina í viðbót. Ég er handviss um það.“
Downey Jr. er ekki enn búinn að skrifa undir samning um leik í fjórðu myndinni, sem hefur vakið upp vangaveltur um að hann ætli sér ekki að leika í fleiri myndum.
Downey Jr. var mættur til London til að vera viðstaddur frumsýninguna, ásamt meðleikurum sínum Rebecca Hall, Don Cheadle, Drew Pearce, Shane Black og Sir Ben Kingsley.
Ben Kingsley sagði við þetta sama tækifæri að leikur Downey Jr. væri frábær í myndinni og hann næði vel að túlka hið tvískipta eðli Tony Stark, sem jafnframt er Iron Man.