Denzel Washington hefur verið orðaður við aðalhlutverkið í nýrri mynd sem verður byggð á sjónvarpsþáttunum The Equalizer.
Sony Pictures og Escape Artists ætla að færa sjónvarpsþættina frá níunda áratugnum yfir á hvíta tjaldið.
Samkvæmt Flickering Myth hefur Refn, sem leikstýrði Drive og Pusher, verið boðið að leikstýra myndinni.
Edward Woodward lék hinn grjótharða Robert McCall, einkaspæjara sem áður var sérsveitamaður, í The Equalizer og nutu þættirnir töluverðra vinsælda.