Bradley Cooper á samkvæmt Variety kvikmyndaritinu í viðræðum um að tala fyrir hinn vélbyssuleikandi Rocket Raccoon, í Guardians of the Galaxy, sem Marvel og Disney framleiða.
Samningum við leikarann er ekki lokið en búið er að gera honum tilboð samkvæmt heimildum blaðsins.
Myndinni er leikstýrt af James Gunn, og með helstu hlutverk fara Chris Pratt, Zoe Saldana og Benicio Del Toro. Myndin kemur í bíó 1. ágúst 2014.
Aðrir sem orðaðir eru við myndina eru menn eins og Vin Diesel, sem myndi tala fyrir besta vin Rocket Raccoon, geim-trjáskrímslið Groot.
Marvel hefur lengi litið á Guardians of the Galaxy sem sitt eigið „Star Wars“ enda koma við sögu ýmis geimtæki og tól, og geimverur.
Rocket Racoon, eða Eldflauga þvottabjörninn í lauslegri þýðingu, er lykilpersóna í „Guardians“ liðinu, og kom við sögu í kitlu sem Marvel sýndi á D23 sýningu Disney fyrr í þessum mánuði.