Ólympíu gamanmyndin Cool Runnings, með John Candy í aðahlutverkinu, hefur verið valin notalegasta kvikmynd allra tíma, í könnun sem gerð var á meðal kvikmyndaunnenda.
Myndin er byggð á sönnum atburðum þegar bobsleðalið frá Jamaíku keppti á vetrarólympíuleikunum í Calgary í Kanada árið 1988.
10% þátttakenda í könnuninni völdu þessa mynd sem þá bestu til að hressa upp á sálartetrið í skammdeginu.
Í öðru sæti varð Stephen King dramað The Shawshank Redemption, sem margir telja að sé ein besta kvikmynd allra tíma, en 9% þátttakenda völdu hana. Í þriðja sæti varð svo myndin um einfeldninginn og snillinginn Forrest Gump, en myndin fékk 8% atkvæða.
Í fjórða sæti varð Amelie með Audrey Tautou í hlutverki hinnar bjarteygu þjónustustúlku frá París, og á eftir henni kom hin sígilda Ferris Bueller’s Day Off.
Þátttakendur í könnuninni voru um 3.000 talsins, og var könnunin framkvæmd af vídeóleigunni LOVEFiLM í Bretlandi.
Ritstjóri vídeóleigunnar, Helen Cowley, segir að fátt sé betra við skammdegisdrunganum, en að horfa á notalega mynd sem lyftir andanum og lætur manni líða vel.
Hér að neðan er listi 10 notalegustu myndanna samkvæmt könnuninni:
1. Cool Runnings – 10%.
2. The Shawshank Redemption – 9%.
3. Forrest Gump – 8%.
4. Amelie – 7%.
5. Ferris Bueller’s Day Off – 6%.
6. Little Miss Sunshine – 5%.
7. Dirty Dancing – 4%.
8. Groundhog Day – 3%.
9. It’s A Wonderful Life – 2%.
10. Pretty Woman – 1%.
Aðrar – 45%.