Leikstjórinn Paul Feig tilkynnti á Twitter í dag að hann hefði ráðið engan annan er Þór leikarann Chris Hemsworth í nýju Ghostbuster myndina, en hún er endurræsing á upphaflegu seríunni, með konur í öllum aðalhlutverkunum.
Hemsworth mun leika ritara og aðstoðarmann draugabananna.
Our receptionist. #whoyougonnacall pic.twitter.com/wGTzs8KdUs
— Paul Feig (@paulfeig) June 10, 2015
Twitter tíst Feig skýrir ekki nánar frá hlutverkinu, en Deadline vefurinn segir að Hemsworth muni leika mann sem aðstoðar draugabanana í tæknimálum, eins og það er orðað í frétt.
Draugabanana leika þær Melissa McCarthy, Kristen Wiig, Kate McKinnon og Leslie Jones.
Hemsworth hefur verið að breikka hlutverkaval sitt upp á síðkastið og tekið að sér fleiri gamanhlutverk. Bráðlega sést hann á hvíta tjaldinu í Vacation endurræsingunni, sem eiginmaður Audrey Griswold.
Tökur á Ghostbusters munu fara fram í New York í sumar og frumsýning er áætluð 22. júlí 2016.