Bill Murray stillti sér óvænt upp á ljósmynd með nýtrúlofuðu pari á dögunum.
Atvikið átti sér stað í borginni Charleston í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum skömmu eftir trúlofun Ashely Donald og Erik Rogers.
„Ég lét parið setjast í stigann og gera sig tilbúið fyrir myndatöku þegar ég heyrði fólk tala fyrir aftan mig. Þegar ég horfði í gegnum linsuna fannst mér parið vera undrandi og ekki einbeitt,“ sagði ljósmyndarinn Raheel Gauba frá Fia Forever Photography, sem tók myndina, á bloggsíðu sinni.
„Ég hugsaði með mér : „Það er einhver að angra þau“ – þegar ég sneri mér við og sá Hr. Murray standa þarna búinn að draga skyrtuna upp með belginn út í loftið sem hann slær frekar hátt til að fá parið til að hlæja,“ sagði hún.
„Ég var auðvitað mjög undrandi og bauð Hr. Murray að vera með á einni mynd.“
Ashley Donald birti myndina svo á Twitter-síðu sinni.
Hinn 64 ára Murray er sjálfur tvífráskilinn.