Fimm krakkar hitta veru að nafni Psammead, sem getur látið óskir rætast. Um þetta fjallar bíómyndin Four Children and It, eða Fjögur börn og Það, sem aftur er byggð á nútímaútgáfu Jacqueline Wilson af skáldsögu E. Nesbit frá árinu 1902; Five Children and It.
Búið er að ráða fyrstu leikara í myndina, en það eru engir aðrir en Michael Caine, Bill Nighy og Matthew Goode.
Þetta verður ekki í fyrsta skipti sem við fáum að sjá Psammead á skjánum. Árið 2004 talaði breski leikarinn Eddie Izzard fyrir „It“ ásamt Freddie Highmore og Kenneth Branagh, og þar áður gerði BBC tvær þáttaraðir sem í Bandaríkjunum voru þekktar undir nafninu The Sand Fairy, auk þess sem til er teiknimynd frá níunda áratug síðustu aldar um þessa sögupersónu.
Tökur eiga að hefjast í Bretlandi í ágúst.