Athafnakonur fá lærling

emma-stoneBandaríska leikkonan Emma Stone mun leika aðalhlutverkið í gamanmyndinni Women in Business, eða Athafnakonur, í lauslegri þýðingu.

Kate McKinnon og Jillian Bell leika einnig í myndinni, og Jake Szymanski, sem leikstýrði Mike and Dave Need Wedding Dates, mun sjá um leikstjórn.

Myndin fjallar um tvær metnaðargjarnarn konur sem sendar eru í viðskiptaferð til Kanada, og ráða eina konu til viðbótar af Craigslist ( bland.is Bandaríkjanna ), sem lærling. En lærlingurinn setur allt í uppnám.

Höfundur handrits er nýliði í bransanum, Laura Steinel, en Twentieth Century Fox framleiðir myndina, samkvæmt The Wrap.