Samkvæmt upplýsingum sem joblo.com hefur úr The Tracking Board, þá mun kvikmyndaleikstjórinn Darren Aronofsky, sem er Íslendingum að góðu kunnur eftir að hann tók Biblíustórvirkið Noah upp hér á landi, hafa hug á að leikstýra myndinni The Good Nurse eftir handriti sem Krysty Wilson-Cairns er að vinna upp úr samnefndri bók, fyrir framleiðslufyrirtækið Lionsgate.
Myndin fjallar um hjúkrunarfræðinginn Charlie Cullen, sem fljótlega fékk á sig viðurnefnið „Engill dauðans“ í fjölmiðlum, eftir að hann var handtekinn árið 2003. En Cullen var hvorki venjulegur líknarmorðingi né dæmigert skrímsli. Hann var vel liðinn sonur, eiginmaður, faðir, besti vinur og viðurkenndur í sínu fagi. En bendlun hans við dauða allt að 300 sjúklinga, gerði hann líklega að afkastamesta fjöldamorðingja í sögu Bandaríkjanna.
Morðferill Cullen spannaði sextán ár við níu spítala í New Jersey og í Pennsylvaníu, eða þar til hann var sakfelldur í mars árið 2006.
Þó að Aronofsky sé tengdur þessu verkefni sem stendur, eins og JoBlo bendir á, þá er það ekki hundrað prósent víst að hann endi svo á því að leikstýra myndinni, en sagan ætti þó að geta heillað hann nógu mikið til að takast á við verkefnið!