Nú hefur lent á vefnum fyrsta skotið af leikaranum Andrew Garfield í Spider-Man búningnum. Garfield, sem lék seinast í myndinni The Social Network, fer eins og margir vita með hlutverk Peter Parker í þessari ‘endurræsingu’ á seríunni um Spider-Man. Eins og má sjá er búningurinn breyttur frá því í fyrri myndunum en heldur samt sem áður í klassíska útlitið.
Þá er það spurningin sem skiptir sköpum. Hvernig finnst ykkur búningurinn?
– Bjarki Dagur