Allir vilja Villibráð

Miðað við umræðuna í þjóðfélaginu og stöðuna á nýja íslenska bíóaðsóknarlistanum er varla hægt að segja annað en að það séu allir æstir í nýju íslensku kvikmyndina Villibráð. Hún er nú fjórðu vikuna í röð á toppi aðsóknarlistans.

Símafjör í partýi.

Villibráð

Villibráð 2023

Gaman, Drama, Íslenskt · 110 mín12 áraIMDb 7.3

Í matarboði í Vesturbænum ákveða sjö vinir að fara í stórhættulegan samkvæmisleik. Viðstaddir leggja símana á borðið og fallast á að öll símtöl og skilaboð sem berast verði deilt með samkomunni til að sanna að ekkert…

Horfa:SÝN
Gefa einkunn

Myndin hefur fengið einróma lof og þykir mjög fyndin og skemmtileg, sem skýrir líklega hina miklu aðsókn. Samtals eru tekjur myndarinnar komnar upp í 67 milljónir króna frá frumsýningu.

Litlar sviptingar

Það eru annars mjög litlar sviptingar á toppi listans þessa vikuna. Allt er óbreytt frá því í síðustu viku og vikunni þar á undan. Avatar: The Way of Water er í öðru sæti, Stígvélaði kötturinn í því þriðja og Babylon í því fjórða.

Nýju myndirnar, The Whale, Maybe I Do og The Fabelmanns fylgja í humátt á eftir ásamt hinni stórskemmtilegu Guy Ritchie mynd Operation Fortune.

Sjáðu listann í heild sinni hér fyrir neðan: