Arnold Schwarzenegger er mættur aftur í nýjustu Terminator-myndinni, Genisys. Ekki nóg með það heldur eru nokkrar útgáfur af hinum 67 ára leikara í myndinni.
Framleiðendurnir David Ellison og Dana Goldberg sögðu við frumsýningu Genisys að „fjórir mismunandi Arnoldar“ væru í myndinni og að þeir væru á mismunandi aldri.
Flestar týpurnar af Arnoldi eru svokallaðar „synthespians“ eða tölvugerðar yngri útgáfur af honum.
Ekkert myndefni úr fyrri Terminator-myndunum var notað við tölvuvinnsluna. Að sögn Goldberg sá hópur fólks um að gera þetta mögulegt.
„Ef þið sjáið ungan Arnold í þessari mynd og ef ykkur finnst hann raunverulegur þá höfum við vonandi skilað af okkur góðu verki,“ sagði Goldberg.