Avatar í stofunni á Blue-Ray eða DVD

Twentieth Century
Fox Home Entertainment hefur ákveðið að gefa stórmyndina Avatar út á Blu-ray diski og DVD-diski
samtímis um allan heim þann 21. apríl nk.

Í fréttatilkynningu segir að
Blu-ray diskurinn sé stórkostleg upplifun fyrir þau sem kjósa að horfa á myndina heima, en hún er
þekkt fyrir einstök mynd- og hljómgæði ásamt ótrúlegri kvikmyndatöku auk þess
sem útlitshönnun og brellur njóta sín til fulls í hágæðaupplausn á Blu-ray
diskinum.

Það verður spennandi að sjá hvernig Avatar skilar sér á skjáinn heima í stofu.

Stikk: