Sígilda íslenska kvikmyndin Devil’s Island (Djöflaeyjan) eftir Friðrik Þór Friðriksson verður sýnd á Black Nights Film Festival (PÖFF) í Tallinn í Eistlandi 14. nóvember næstkomandi.
PÖFF er ein stærsta og þekktasta kvikmyndahátíð í norður Evrópu og hefur sérstakar tengingar við Friðrik Þór — hann hlaut þar viðurkenningu fyrir lífsstarf sitt, eða Lifetime Achievement Award, árið 2011.
Devil’s Island var frumsýnd 1996. Hún er byggð á metsölubókum Einars Kárasonar ( Þar sem djöflaeyjan rís og Gulleyjan) og segir frá sorgum og sigrum stórfjölskyldu Karólínu spákonu. Amerísk áhrif tröllríða öllu; bílar, áfengi og rock’n roll er það eina sem kemst að hjá Badda, augasteini Karólínu spákonu og elsta barnabarni, og félögum hans, meðan Danni bróðir hans fylgist með herlegheitunum úr fjarlægð. Djöflaeyjan, sem gerist á miklum umbrotatímum í íslensku samfélagi á árunum eftir seinna stríð, er saga um fjölskylduátök, vináttu, lífsbaráttuna, ástina og sorgina. Myndin er fyndin og jafnframt hádramatísk saga fjölskyldu sem reynir að halda velli í hörðum heimi.
Djöflaeyjan er byggð á metsölubókum Einars Kárasonar ( Þar sem djöflaeyjan rís og Gulleyjan) og segir frá sorgum og sigrum stórfjölskyldu Karólínu spákonu. Amerísk áhrif tröllríða öllu; bílar, áfengi og rock'n roll er…
Djöflaeyjan 1996
SÝN
PÖFF stendur yfir 6.–22. nóvember 2026 í Tallinn.
Heimild: PÖFF / Cinema Artis







