Norræna kvikmyndahátíðin Hygge mun fara fram í Háskólabíói 4. – 18. maí. Þar verður boðið upp á átta glænýjar kvikmyndir frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíðþjóð.

Lilja Ósk Diðriksdóttir framkvæmdastjóri hátíðarinnar segir í samtali við Vísi.is að nafn hátíðarinnar fangi stemninguna vel. Hún segir að drama, gaman og smá action einkenni myndirnar en gamanið sé heildarþráðurinn. Hún segir að myndirnar á hátíðinni séu kvikmyndir sem gaman sé að sjá með maka, vinum eða mömmu og eiga góða kvöldstund. „Við Íslendingar tengjum vel við skandinavískan húmor, sem er oft dálítið svartur. Þessar myndir ná til manns og toga aðeins í hjartað. […] Það eiga því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi á hátíðinni,“ segir Lilja í samtali við Vísi.is
Sló aðsóknarmet
Lilja segir við kvikmyndir.is að myndirnar séu allar geggjaðar og hafi hver og ein slegið í gegn í sínu heimalandi. „M.a. er hin finnska Sisu og svo danska Underverden 2 sem var að slá aðsóknarmet í Danmörku. Eins erum við með frábærar gamanyndir, rómantík og grín,“ segir Lilja.
Sjáðu stiklu úr Sisu og Underverden 2 hér að neðan, smelltu hér til að skoða allar myndirnar á heimasíðu Hygge eða skoðaðu þær á kvikmyndir.is:

Lykkelige omstændigheder 2022
Þegar Karoline verður óvart ólétt, en hefur ekki hug á að halda barninu, gerir hún áætlun um að gefa barnlausri systur sinni krakkann - í skiptum fyrir góða peningasummu.

Underverden II 2023
Það eru 7 ár síðan Zaid fór í stríð við undirheima Kaupmannahafnar til þess að hefna látins bróður síns. Staða hans sem virtur hjartalæknir og fjölskyldufaðir er fjarlægur draumur og í fangelsinu saknar Zaid sonar síns…

Fædre og mødre 2022
Hér er fjallað um hjónin Piv og Ulrik sem þurfa að feta sig í gegnum stigveldi, samkeppni og duldar áætlanir í nýja skóla dóttur sinnar, meðal annars í vinsælli útilegu skólans.

Andra akten 2023
Myndin fjallar um Evu sem finnst hún vera mjög upptekinn en verður samt sem áður vinkona stórleikarans Harold Skoog. Hún áttar sig á að lífið er ekki að verða búið, heldur er það einungis rétt að byrja.

Meter i sekundet 2023
Líf Marie umturnast þegar ástin í lífi hennar, Rasmus, fær vinnu sem kennari í skóla í Velling. Marie fylgir Rasmus með trega og á meðan Rasmus smellur inn í bæjarlífið, verður Marie fyrir menningaráfalli. Með tímanum…

Sisu 2022
Myndin fjallar um fyrrum hermann sem uppgötvar gull í óbyggðum Lapplands. Þegar hann reynir að taka fenginn inn í borgina ráðast á hann Nasistahermenn undir forystu grimms SS liðsforingja.
Sisu:
Hasarmyndin Sisu, leikstýrð af Jarmari Helander, fjallar um fyrrum hermann sem uppgötvar gull í óbyggðum Laplands en þegar hann reynir að taka fenginn inn í borgina ráðast á hann Nasistahermenn undir forrystu grimms SS liðsforingja.
Underverden 2
Underverden 2, leikstýrð af Fenard Ahmad, fjallar um Zaid sem gekk í stríð við undirheima Kaupmannahafnar til þess að hefna látins bróður síns fyrir sjö árum. Auðkenni hans sem virtur hjartalæknir og lífið hans sem fjölskyldufaðir er fjarlægur draumur og í fangelsinu finnur Zaid til söknuðar til sonar síns Noah sem hann þekkir varla. Þegar leyniþjónustan leitar til Zaid og býður honum samning þar sem hann verður látinn laus gegn því að hann uppljóstri glæpagengi Kaupmannahafnar, sér hann tækifæri til þess að endurheimta fjölskyldulífið sem hann skildi eftir sig.






