Það er viðbúið að fólk fái vatn í munninn við að horfa á nýjustu kvikmynd leikstjórans Mark Mylod sem samkvæmt frétt í The Telegraph nær að mynda veislumat á fullkominn máta í The Menu, grínmynd með svörtum húmor, sem kemur í bíó hér á Íslandi á morgun.
Leikstjórinn á að baki vinnu við sjónvarpsþættina vinsælu Game of Thrones og hélt svo áfram og gerði aðra verðlaunaseríu, Succession, þar sem matur kemur mikið við sögu, rétt eins og í Krúnuleikunum.
„Ég tók upp atriði þar sem [skáldaður húðsjúkdómur] grayscale var numinn á brott með spjóti af bringu persónu Iain Glenn í Game of Thrones,“ segir Mylod við The Telegraph.
Mylod skipti þar næst frá myndbrotinu af sýktu holdi riddarans yfir í myndskeið af matarskeið að fara inn í ljúffenga böku.
„Matar-stílistinn paraði saman áferðina af hinum ljúffenga eftirrétti við útlit greyscale húðsjúkdómsins. Þannig að þetta leit út eins og að skeið væri að fara inn í húð Iain. Og við fengum þessa dásamlega klísturkenndu áferð, með kjötþráðunum og lekandi safa, þegar persónan setur skeiðina í munninn. Það tók marga mánuði að fullmóta þetta, þetta leit ógeðslega út, og ég er mjög stoltur af því!“
Ofurríkir gestir
Í The Menu eru álíka ljúffeng andartök. Ralph Fiennes leikur aðalhlutverkið, yfirkokk á dýrum veitingastað á einkaeyju. Gamanmyndin fylgist með hópi ofurríkra gesta frá Kísildal í Bandaríkjunum – netfyrirtækjagaurum, gömlum Hollywood leikara og aðstoðarmanni hans m.a. Kvöldstundin sem þetta fólk á fyrir höndum á eftir að verða ógleymanleg, ekki bara fyrir þau heldur líka fyrir starfsfólks veitingastaðarins.
Aðrir gestir á staðnum eru meðal annars matarsnobbari, sem leikinn er af Nicholas Hoult sem dýrkar kokkinn Slowik, sem Fiennes leikur, kærasta hans, sem Anya Taylor-Joy leikur, og eldri hjón sem eru svo vel sett að þau hafa borðað oftar á lúxusveitingastaðnum en þau vilja muna ( og í raun muna þau ekki eftir neinni máltíð).
Grimmasta persónan er líklega matargagnrýnandinn Lillian, sem segist hafa uppgötvað Slowik. Hún er leikin af Janet McTeer.
Eins og segir frá í The Telegraph þá undirbjó leikkonan, sem er frá Newcastle í Englandi, sig undir hlutverkið með Ruth Reichl, sem var í tvo áratugi matargagnrýnandi á Los Angeles Times og The New York Times. „Ruth og ég ræddum hvernig á ákveðnum tímapunkti fer allt að snúast um gagnrýnandann,“ segir McTeer. „En góður matarrýnir ætti að vera nafnlaus. Best væri ef þú færir inn á veitingastað og enginn veit af þér þar. En persóna mín birtist mjög áberandi með bleikt hár og í flottu dressi svo fólk taki örugglega eftir henni.“
Fleiri matarmyndir
Eins og The Telegrap bendir á hefur ekki verið mikið um svona matarkvikmyndir, nema rétt nýlega með Boiling Point, með Stephen Graham, í hlutverki útbrunnins kokks. (Verið er að gera sjónvarpsseríu upp úr kvikmyndinni).
Þá megi einnig nefna The Bear, sem sló nýlega í gegn á Disney+ og Mammals sem var frumsýnd á Amazon Prime á dögunum, með James Corden í hlutverki matreiðslumanns í vanda.
Leitaði í smiðju reyndra kokka
Hinn 57 ára gamli leikstjóri The Menu leitaði í smiðju reyndra kokka við undirbúning myndarinar og hámhorfði á alla 38 þætti af Chef´s Table, þar sem áhorfendur fá að kynnast mörgum af stærstum nöfnum í bransanum. Hann hvatti leikarana líka til að horfa.
„Ég benti Ralph sérstaklega á að horfa á þáttinn með Grant Achatz [Michelin staðurinn Alinea í Chicago]. Hann lagði sig allan fram hvað nýjungar og þróun listarinnar varðaði. (Grant fékk krabbamein í munninn 2007, en meðferðin kostaði hann bragðskynið um tíma)
Þá hvatti leikstjórinn Hoult til að borða á The Fat Duck í Berkshire.