Spennu og ævintýramyndin Insurgent verður heimsfrumsýnd á Íslandi þann 20.mars 2015. Hér er á ferðinni nýjasta myndin í Divergent seríunni. Með meginhlutverk fara m.a Shailene Woodley, Ansel Elgort, Theo James, Miles Teller, Naomi Watts og Kate Winslet.
Þegar íbúar fylkjanna ná sextán ára aldri þurfa þeir hver fyrir sig að velja endanlega hvaða fylki þeir vilja tilheyra, og þá hvaða hóp, en val þeirra er óendurkræft og verður ekki breytt. Til að aðstoða unglingana við valið eru þeir sendir í sérstakt próf, en niðurstaða þess gefur vísbendingu um hvaða fylki þeir ættu að velja þótt valið sé endanlega á valdi hvers og eins.
Þegar Tris fór í gegnum prófið kom í ljós að hún var það sem kallast „afbrigði“, en svo nefnast þeir sem prófið leiðir í ljós að tilheyra fleiri fylkjum en einu. Afbrigðin eru hins vegar eitur í beinum Jeanine, leiðtoga hinna fjölvísu, sem hefur ákveðið að útrýma þeim fyrir fullt og allt.
Sýningarstaðir: Sambíóin Álfabakka, Kringlunni, Egilshöll, Keflavík og Akureyri,
Selfossbíó, Ísafjarðarbíó, Bíóhöllin Akranesi og Króksbíó Sauðárkróki.