Michael Richards, sem lék Kramer svo eftirminnilega í gamanþáttunum Seinfeld, hefur ákveðið að snúa aftur í sjónvarpið.
Hann leikur á móti Kirstie Alley og Rhea Perlman í prufuþætti af Giant Baby, samkvæmt Deadline. Hann fer með hlutverk bílstjóra eðalvagns sem ekur persónu Alley. Hún er fyrrverand stjarna á Broadway sem endurnýjar kynni sín við löngu týndan son sinn.
Hinn 63 ára Richards hlaut þrenn Emmy-verðlaun fyrir hlutverk sitt sem hinn stórfurðulegi Kramer í Seinfeld. Eftir það lék hann aðalhlutverkið í þáttunum The Michael Richards Show árið 2000 sem urðu skammlífir. Hann lék einnig sjálfan sig í nokkrum þáttum af Curb Your Enthusiasm árið 2009.