Handritið að The Grand Budapest Hotel var valið besta frumsanda handritið að kvikmynd á Writers Guild of America-verðlaununum um helgina. Wes Anderson skrifaði handritið ásamt því að leikstýra myndinni sem var frumsýnd á síðasta ári. Kvikmyndin er tilnefnd til átta Óskarsverðlauna en Óskarsverðlaunahátíðin fer fram þann 21. febrúar.
Lisa Kudrow tilkynnti verðlaunin á hátíðinni, en hún er þekktust fyrir að leika Phoebe í sjónvarpsþáttaröðinni Friends. Anderson var að vonum ánægður með verðlaunin og sagði að hann gæti ekki hugsað sér að taka við þessum verðlaunum í betri félagsskap.
Hér að neðan má sjá lista yfir helstu vinningshafa kvöldsins.
Besta frumsanda handrit
The Grand Budapest Hotel
Wes Anderson og Hugo Guinness
Besta handrit byggt á áður útgefnu efni
The Imitation Game
Graham Moore
Besta handrit að heimildarmynd
The Internet’s Own Boy: The Story of Aaron Swartz
Brian Knappenberger
Besta handrit að dramaþáttum
True Detective
Nic Pizzolatto
Besta handrit að gamanþáttum
Louie
Louis CK