Kvikmyndin Vonarstræti kom, sá og sigraði á Edduverðlaunahátíðinni, uppskeruhátíð íslensku kvikmynda – og sjónvarpsakademíunnar, sem fór fram í Hörpu gær, og hlaut tólf Edduverðlaun, þar á meðal verðlaun fyrir bestu mynd, besta handrit og bestu leikstjórn.
Myndin keppti við París norðursins í nær öllum flokkum, en París norðursins hlaut tvenn verðlaun á hátíðinni.
Hér fyrir neðan er heildarlisti verðlaunahafa:
Heiðursverðlaun Eddunnar: Ómar Ragnarsson
Kvikmynd ársins: Vonarstræti
Kvikmyndataka ársins: Jóhann Máni Jóhannsson – Vonarstræti
Klipping ársins: Sigurbjörg Jónsdóttir – Vonarstræti
Brellur ársins: Bjarki Guðjónsson – Harry og Heimir: Morð eru til alls fyrst
Leikið sjónvarpsefni ársins: Hraunið
Hljóð ársins: Árni Benediktsson, Huldar Freyr Arnarsson og Pétur Einarsson – Vonarstræti
Tónlist ársins: Ólafur Arnalds – Vonarstræti
Búningar ársins: Margrét Einarsdóttir – Vonarstræti
Leikmynd ársins: Gunnar Pálsson – Vonarstræti
Gervi ársins: Kristín Júlla Kristjánsdóttir – Vonarstræti
Leikkona ársins í aðalhlutverki: Hera Hilmarsdóttir – Vonarstræti
Leikari ársins í aðalhlutverki: Þorsteinn Bachmann – Vonarstræti
Sjónvarpsmaður ársins: Brynja Þorgeirsdóttir
Frétta- eða viðtalsþáttur ársins: Landinn
Barna- og unglingaefni ársins: Ævar vísindamaður
Leikkona ársins í aukahlutverki: Nanna Kristín Magnúsdóttir – París norðursins
Leikari ársins í aukahlutverki: Helgi Björnsson – París norðursins
Skemmtiþáttur ársins: Orðbragð
Lífsstílsþáttur ársins: Hæpið
Menningarþáttur ársins: Vesturfarar
Leikstjórn ársins: Baldvin Z – Vonarstræti
Handrit ársins: Baldvin Z og Birgir Örn Steinarsson – Vonarstræti
Stuttmynd ársins: Hjónabandssæla
Heimildamynd ársins: Höggið