Tom Cruise á hlaupum

Leiklistarferill Tom Cruise er langur og farsæll og hefur Cruise brugðið sér í hlutverk leigumorðingja, vampíru, samúræja, flugmanns og svona mætti lengi telja. Það virðist þó eitt sameina persónunar sem hann leikur. Þær eiga allar mjög auðvelt með að taka til fótanna.

Það má deila hvort þetta séu meðvitaðar ákvarðanir, þráhyggja eða ef til vill tilviljanir hjá Cruise en hvað sem því líður þá hefur einhver þarna úti í hinum stóra heimi tekið saman myndefni af Cruise á harðahlaupum í hlutverkum sínum.

Nýjasti sprettur Cruise má sjást í kvikmyndinni Oblivion og er hún sýnd í kvikmyndahúsum á Íslandi um þessar mundir.

Fleiri leikarar hafa átt við samskonar þráhyggjur. Will Ferrell sagði eitt sinn í viðtali að hann ætti mjög erfitt að leika persónu sem kæmi aldrei fram fáklædd. Christopher Walken hefur hinsvegar þann sið að taka nokkur dansspor í kvikmyndum sínum.

Stikk: