Glæný stikla úr Zoolander 2 er komin út og er hún bráðfyndin.
Karlfyrirsæturnar Hansel og Derek Zoolander þykja gamlar og þreyttar í tískuheiminum og heitasta karlfyrirsætan er sú sem Benedict Cumberbatch leikur.
Penelope Cruz leikur starfsmann Interpol sem óskar eftir hjálp Hansel og Derek.
Popparinn Justin Bieber kemur einnig við sögu í stiklunni og notar að sjálfsögðu Blue Steel-útlit Derek.
Að sjálfsögðu er Mugatu einnig á sínum stað, grimmari en nokkru sinni fyrr.
Zoolander 2 er væntanleg í bíó í febrúar.