Fyrsta sýnishornið úr nýjustu mynd Luc Besson, Lucy, var sýnt á kvikmyndaráðstefnunni CinemaCon í Las Vegas.
Í myndinni leikur Scarlett Johansson burðardýr sem breytist í umbreytist í mikla bardagahetju sem finnur ekki til sársauka og tilfinninga þegar eiturlyfið sem hún reyndi að smygla innvortis kemst óvart inn í blóðrás hennar.
Áhorfendur á CinemaCon hrifust af þessu fyrsta sýnishorni og núna hefur Entertainment Weekly birt fyrstu ljósmyndina af Johansson í aðalhlutverkinu.
Morgan Freeman og Analeigh Tipton leika einnig stór hlutverk í Lucy, sem verður frumsýnd í Norður-Ameríku í ágúst.
Frakkinn Luc Besson leikstýrði síðast The Family en á að baki gullmola á borð við The Fifth Element, Leon og La Femme Nikita.