Hinn þekkti 84 ára gamli rússneski kvikmyndaleikari Ivan Krasko hefur kvænst fyrrum nemanda sínum, Natalya Shevel, 24 ára, en þau kynntust þegar hann var að kenna henni í háskóla í St. Pétursborg. Það var ást þeirra á ljóðum sem sameinaði þau.
„Tvær einmana manneskjur hafa ákveðið að styðja hvort annað,“ sagði Krasko sem er sex barna faðir, í viðtali við REN TV.
Frá þessu er sagt í The Independent og birtar myndir af brúðkaupinu.
„Ég vildi að Natalia gæti eignast dóttur, en það er aðeins draumur gamals bjána,“ sagði Kranko.
„Við einfaldlega þörfnumst hvors annars.“
Krasko klæddist í brúðkaupinu gömlum einkennisbúningi sem hann var í þegar hann var í sovéska hernum á sjötta áratug síðustu aldar.
Leikarinn varð frægur fyrir leik í tugum rússneskra kvikmynda og sjónvarpsþáttaraða.
Shevel er fjórða eiginkona hans, en sú þriðja var Natalya Shchepinsky, sem var einungis 47 árum yngri en hann.
Shevel sagði að eiginmaður hennar, sem á einnig þrjú barnabörn, hafi „lofað“ henni að minnsta kosti sjö árum saman.
Hjónin eru nú á brúðkaupsferð í Frakklandi og á Ítalíu.