Nýtt myndbrot úr Fortitude

fortitude1Tökur á bresku spennuþáttunum Fortitude stóðu yfir hér á landi, nánartiltekið á Austurlandi, með hléum frá febrúar sl. og fram á sumar. Þættirnir eiga að gerast á Svalbarða þar sem engir alvarlegir glæpir hafa átt sér stað, þar til nú.

Nýtt myndbrot úr þáttunum hefur verið sett á vefinn og þar fáum við að kynnast lögreglustjóranum Dan Anderson, sem er leikinn af Richard Darmer.

Með önnur hlutverk í þáttunum fara m.a. Stanley Tucci, Sofie Gråbøl og Harry Potter-leikarinn Michael Gambon. Íslenski leikarinn Björn Hlynur Haraldsson fer einnig með hlutverk í þáttunum, sem verða alls 12 talsins.

Myndbrotið má sjá með því að smella hér.

Stikk: