Ný heimildarmynd um Beckham

Fótboltakappinn fyrrverandi David Beckham verður í sviðsljósinu í heimildarmyndinni David Beckham: For the Love of the Game, sem BBC ætlar að framleiða. david beckham

Í myndinni mun Beckham spila fótbolta í öllum sjö heimsálfunum, að því er Variety greindi frá.

Kappinn ferðast til þorpa í Papúa Nýju-Gíneu, Nepal og Buenos Aires þar sem hann spilar fótbolta með heimamönnum, auk þess sem hann ferðast til Djibouti í Afríku, Miami og Suður-heimskautsins. Ferðalaginu lýkur á Old Trafford, fyrrum heimavelli Beckham hjá Manchester United.

Með honum í för verður æskuvinur hans, Dave Gardner.

 

 

Stikk: