Verbúðin

Verbúðin (2021)

2021 1 álit notenda

Íslensk þáttaröð sem gerist á árunum 1983-91.

Hvað fannst þér?
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
  • ★
Viltu vinna bíómiða? Taktu þátt í Bíómiðapottinum
Hvar má horfa

Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.

Skráðu þig inn →

Hvar má horfa

Streymi
RÚV

Söguþráður

Íslensk þáttaröð sem gerist á árunum 1983-91. Vinahjón gera upp gamlan togara og fara í útgerð. Allt gengur vel þar til kvótakerfið kemur til sögunnar og setur líf hjónanna sem og allra landsmanna í uppnám.

Þáttaröðinni lokið1 þáttaröð

Þættir

1 þáttaröð · 8 þættir
Horfa áRÚV
  1. 1

    Samningurinn

    Jón Hjaltalín, bæjarstjóri í smábæ á Vesturlandi, og Torfi, bróðir hans, áforma að kaupa gamlan togara og hefja útgerð. Þegar bankamenn frá Reykjavík mæta á svæðið til að ganga frá samningnum kemur þó babb í bátinn.

  2. 2

    Verkfall

    Ári síðar er landið allt í lamasessi vegna verkfalls fiskveiðimanna. Harpa og Grímur eru á milli steins og sleggju og verða að velja á milli þess að gerast verkfallsbrjótar eða drukkna í skuldum.

  3. 3

    Kalt stríð

    Vinahjónin, ásamt Jóni Hjaltalín, grípa til örþrifaráða til að laga kvótakerfið að þörfum sínum. Á meðan heldur baráttan um eignarhaldið á fiskinum áfram í bæjarfélaginu.

  4. 4

    Vestfjarðanornin

    Smári, rannsóknarblaðamaður frá Reykjavík, vinnur að grein um Hörpu og leitar að vísbendingum um tengsl hennar við Jón Hjaltalín.

  5. 5

    Maður ársins

    Harpa og Grímur ganga á fund forsætisráðherra í von um að fá aukinn kvóta til að halda útgerðinni gangandi. Tinna snýr aftur til bæjarins og hefur sín eigin áform.

  6. 6

    Í öfugum nærbuxum

    Hjónaband Hörpu og Gríms er í uppnámi. Á meðan þau vinna í sínum málum sendir Harpa Einar og Freydísi um landið í leit að smærri bátum til að kaupa. Smári er enn með Hörpu undir smásjánni.

  7. 7

    Kóngar og drottningar

    Teymið hittist allt til að gera upp málin yfir aðeins of mörgum drykkjum.

  8. 8

    Ísland

    Bærinn er í uppnámi eftir nýjustu atburði og allra augu beinast að Hörpu. Á sama tíma mætir Smári á svæðið.

Aðalleikarar

Álit notenda (1)

Nostalgían

★★★★☆

Fyrir mig sem var bara pjakkur þegar ég upplifði þessa tíma að þá man ég eftir lyktinni úr verbúðinni. Þetta er mjög flottir þættir, þeir eru fræðandi og fyndnir, meira svona you ha…