Horse Money (2014)
Cavalo Dinheiro, Hestapeningar
Hestapeningar er mynd sem rýfur mörk heimildamyndar og leikinnar myndir, málverks og bíómyndar.
Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.
Skráðu þig inn →Söguþráður
Hestapeningar er mynd sem rýfur mörk heimildamyndar og leikinnar myndir, málverks og bíómyndar. Þetta er sagan af Ventura, öldruðum múrara frá Grænhöfðaeyjum sem tók þátt í portúgölsku byltingunni árið 1975. Ventura rekur lífshlaup sitt og kljáist við sjálfsmynd sína, hann fer aftur í sitt eigið unga sjálf og virðist þjakaður af sektarkennd. Þetta er mynd sem tekst á við portúgalska sögu og fær raunverulegt fólk til þess að sviðsetja sögu sína og ævi á listrænan hátt. Myndin virkar eins og sería af glæsilegum lifandi málverkum eða innsetningum. Við ferðumst um í hugarheimi Ventura, sem virðist fastur í hreinsunareldinum.
Myndbönd
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Álit notenda
Skráðu þig inn til að skrifa álit
InnskráEngin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!
Umfjöllun af öðrum miðlum
Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!
Framleiðendur

Verðlaun
Myndin vann þrenn verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Locarno, þar á meðal var Costa valinn besti leikstjórinn.












