Hinsegin bíó (2024)
Þrjár magnaðar myndir úr bandarískum hinsegin veruleika. Lesbians (1986) – 5 mín. Stuttmynd eftir Pam Walton, sem hefur á löngum ferli gert margar heimildamyndir um líf hinsegin fólks.
Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.
Skráðu þig inn →Söguþráður
Þrjár magnaðar myndir úr bandarískum hinsegin veruleika. Lesbians (1986) – 5 mín. Stuttmynd eftir Pam Walton, sem hefur á löngum ferli gert margar heimildamyndir um líf hinsegin fólks. Líf samkynhneigðra var auðvitað lengi vel misskilið og túlkað af gagnkynhneigðum út frá þeirra eigin hugmyndum um ástarsambönd. Í myndinni er sýnt samtal þriggja kvenna um hvað það sé að vera lesbía. Hata þær kannski karlmenn?„Talking about being gay, it’s like talking about breathing.“ Behind Every Good Man (1976) – 8 mín. Leikstjóri þessarar merkilegu stutt-heimildamyndar, Nick Elliot, lærði kvikmyndagerð meðal annars í Sorbonne-háskóla og Cinéma Française í París. Myndin er fyrsta heimildamyndin sem sýnir dag í lífi bandarískrar transkonu af afrískum uppruna. Hún var tekin upp í Los Angeles árið 1966. Kvikmyndin fór á skrá hjá The National Film Registry í Bandaríkjunum sem þjóðargersemi árið 2022. Þrátt fyrir margar fínar gráður í kvikmyndagerð sneri Nick Elliot sér síðar aðallega að gerð klámmynda og hefur hann gert margar þekktar slíkar á ferli sínum. Coming Out Under Fire – (1994) 71 mín.Heimildamynd eftir Arthur Dong, margverðlaunaðan kvikmyndagerðarmann sem oftar en ekki hefur gert heimildamyndir þar sem deilt er á kerfisbundið óréttlæti gegn minnihlutahópum, einkum hinsegin fólki, í Bandaríkjunum. Í þessari kvikmynd fáum við að kynnast bandarískum hinsegin hermönnum, bæði konum og körlum, sem deila með áhorfendum reynslu sinni af hernum og meðferðinni á hinsegin fólki í seinni heimsstyrjöldinni.
Aðalleikarar
Álit notenda
Skráðu þig inn til að skrifa álit
InnskráEngin álit ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa álit!
Umfjöllun af öðrum miðlum
Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!


