A Good Old Fashioned Orgy
2011
Frumsýnd: 2. desember 2011
A Comedy about Old Friends in New Positions
95 MÍNEnska
35% Critics
41% Audience
44
/100 Við kynnumst hér partíljóninu Eric sem um árabil hefur
haldið útflippuð partí í húsi föður síns í Hampton. Þangað
hefur hann boðið öllum sínum vinum af báðum kynjum, en
margir þeirra eru engir eftirbátar hans sjálfs þegar kemur að
því að sletta úr klaufunum.
En nú eru blikur á lofti. Faðir Erics hefur nefnilega ákveðið
að selja húsið... Lesa meira
Við kynnumst hér partíljóninu Eric sem um árabil hefur
haldið útflippuð partí í húsi föður síns í Hampton. Þangað
hefur hann boðið öllum sínum vinum af báðum kynjum, en
margir þeirra eru engir eftirbátar hans sjálfs þegar kemur að
því að sletta úr klaufunum.
En nú eru blikur á lofti. Faðir Erics hefur nefnilega ákveðið
að selja húsið í Hampton og kippa þar með grundvellinum
undan partílífi Erics og vina hans. Og það þýðir ekkert fyrir
Eric að reyna að fá pabba til að skipta um skoðun.
Góðu fréttirnar eru þær að það er enn nægur tími til að halda
eitt partí í viðbót og um leið að toppa öll önnur samkvæmi
sem Eric hefur haldið. Og til að fara örugglega fram úr
sjálfum sér ákveður Eric að þemað í þessu síðasta partíi
verði orgía ... kynsvall.
Í fyrstu tekur vinahópurinn frekar fálega í hugmyndina en
Eric er snjall að afla henni fylgis og áður en varir stefnir allt
í eitt mesta og fjörugasta kynsvall allra tíma ... þ.e. ef Eric
tekst að koma í veg fyrir að fallega fasteignasölukonan geri
alvöru úr hótun sinni að selja húsið fyrst.... minna