Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Hard Target er flott í alla staði og getur John Woo tekið þetta hrós sérstaklega til sín. Stíllinn sem John Woo hefur fært inn í Hollywood er rosalega flottur og á sérstaklega vel við í þessari mynd. Van Damme er auðvitað mættur til leiks að berja mann og annan. Í stuttu máli fjallar myndin um stelpu sem ætlar að fara að hitta pabba sinn sem hún hefur ekki séð síðan hún var smákrakki. Hún fær þær upplýsingar um að hann sé týndur og fær aðstoð frá Van Damme til að hjálpa sér að leita hans. Þegar Van Damme byrjar að hjálpa henni kemst hún af því að pabbi sinn var heimilislaus og bjó bara á götunni. Van Damme og hún halda áfram leit sinni og komast að því að pabbi hennar hefur verið myrtur. Þegar morðingjar föður hennar komast að því að Van Damme og stelpan vita svona mikið fara þeir á veiðar á eftir þeim. En ekki bjuggust þeir við að þeir ættu eftir að lenda í svona miklum erfiðleikum að ná Jean-Claude Van Damme!!! Ágætis mynd ef þú hefur gaman af hasarmyndum.
Hard Target er B-mynd í hæsta gæðaflokki. Lítið er gert úr söguþræði en meira úr flottum bardagaatriðum. Van Damme er í essinu sínu í þessarri mynd, þar sem hann þarf að beita öllum sínum kröftum til að lumbra á hátæknivopnuðum mannaveiðimönnum, sem hafa það að féþúfu að selja ríkum mönnum "veiðileyfi" á gamla fyrrverandi hermenn. Myndin er óraunveruleg í marga staði en hverjum er ekki sama þegar um góðan hasar er að ræða. Sem dæmi má taka svakalegt atriði í vörugeymslu, þar sem van Damme stútar tugum byssuóðra brjálæðinga (oftast 10-20 skot á hvern!!). Frábær skemmtun þó leikurinn mætti vera aðeins uppbyggilegri.
Ansi skemmtileg byssuræma, ein af fjölmörgum myndum sem byggðar eru á The Most Dangerous Game frá 1932. Ein af allraskástu myndum Van Damme - þarf kannski ekki mikið til - en John Woo stíllinn kemur sterkur fram og Henriksen og Vosloo eru flottir sem ljótu kallarnir. Testesterónmagnið í myndinni er langt yfir hættumörkum, sem er vel, og verður myndin að teljast ein af betri allirerulamdiríklessu harðhausamyndum á markaðnum.