Náðu í appið
Bönnuð innan 12 áraMyndin getur valdið ótta hjá eða er ógnvekjandi fyrir ung börnÍ myndinni er ljótt orðbragð

Che: Part One 2008

Fannst ekki á veitum á Íslandi
134 MÍNSpænska
Rotten tomatoes einkunn 68% Critics

Che: Part One er fyrri hluti metnaðarfullrar stórmyndar leikstjórans Steven Soderbergh um eina umdeildustu og þekktustu byltingarhetju allra tíma, Ernesto „Che“ Guevara. Stórleikarinn Benicio Del Toro fer með hlutverk Che í myndinni. Hefst myndin árið 1956 þegar Che kynnist Fidel Castro og félögum hans, sem eru að leggja á ráðin um hvernig þeir geti steypt... Lesa meira

Che: Part One er fyrri hluti metnaðarfullrar stórmyndar leikstjórans Steven Soderbergh um eina umdeildustu og þekktustu byltingarhetju allra tíma, Ernesto „Che“ Guevara. Stórleikarinn Benicio Del Toro fer með hlutverk Che í myndinni. Hefst myndin árið 1956 þegar Che kynnist Fidel Castro og félögum hans, sem eru að leggja á ráðin um hvernig þeir geti steypt stjórn harðstjórans og einráðsins Fulgencio Batista af stóli, en herforingjastjórn hans hefur ráðið ríkjum á Kúbu í mörg ár og notið aðstoðar Bandaríkjamanna við það. Fidel, Che og félagar þeirra hafast við í Mexíkó, en safna þar saman liði óánægðra Kúbverja í útlegð og annarra vinveittra aðila áður en þeir ferðast með bátum til Kúbu. Þegar þangað er komið hefst skæruliðahernaður þeirra gegn Batista-stjórninni og er ætlunin að leggja undir sig landsvæði Kúbu, eitt af öðru áður en lagst ertil atlögu inn í höfuðborgina. Á leiðinni breytist hlutverk Che frá því að vera læknir yfir í að leiða eina af aðalsveitum uppreisnarmannanna. En af hverju? Og hvernig mun það breyta Che?... minna


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn