Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Þetta er klárlega ein allra besta mynd sem gerð hefur verið. Vöðvatröllið Hulk Hogan leikur aðalhlutverkið að þvílíkri snilld og sannar sig sem einn mesti hasarmyndaleikari allra tíma. Ég ætla ekki að fara út í söguþráðinn því það gæti eyðilagt skemmtunina, en það sem hún hefur fram yfir aðrar hasarmyndir er að hún er mjög dramatísk og virkilega fyndin í alla staði, en heldur samt alltaf í þessa gríðarlega spennu. Einnig er myndatakan og klipping í hæsta gæðarflokki og hrein unun að sjá slagsmálaatriðin, sem slá út frægar myndir á borð við Patriot með Steven Seagal og American ninja myndirnar.
Eg segi með sanni að þetta er besta mynd allra tíma með frábærum aukaleikurum á borð við Loni Anderson og Paul Roeske að ógleymdum Hogan sem vinnur leiksigur. Ástæðan fyrir því hve lélega dóma hún fær er sú að hún er of djúp fyrir venjulegt fólk og afar flókin en brilliant plott, sem kemur á óvar. Að lokum vil ég segja að myndin er ekki fyrir börn.
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
Framleiðandi
Sony Pictures Home Entertainment
Tekjur
$375.805
Aldur USA:
PG
VHS:
5. ágúst 1998