Aðalleikarar
Leikstjórn
Handrit
Ágætur spennutryllir um kúgaða eiginkonu (Jennifer Lopez) sem flýr frá eiginmanni sínum (Billy Campbell) með unga dóttur sína(Tessa Allen) um leið en maðurinn eltir hana og ætlar að drepa hana og það er of seint að fara til löggunar þannig að hún æfir sjálfsvörn og reynir að verjast honum. Myndin væri náttúrulega miklu betri ef Jennifer Lopez væri ekki í henni (hún er bæði vond söngkona og leikari) en fyrir utan það er þetta fín mynd.
Þessi mynd er hörkuspennandi og Jennifer Lopez stendur sig með prýði í aðalhlutverkinu. Það er hins vegar ekki mjög frumlegur söguþráður og myndin verður á köflum langdregin, til dæmis fyrir þær sakir að aðdragandi lokauppgjörsins sem öll myndin gengur í raun út á, verður í lengra lagi. Ég get þó hiklaust mælt með henni og hún hefur margt gott að geyma, eins og áhersluna á fjölskylduböndin og umhyggju móður gagnvart barni sínu, auk þess sem hún sýnir órjúfanleg vinabönd Slim við vini sína og fyrrverandi kærasta.
Enough fjallar um gengilbeinuna Slim sem finnur draumaprinsinn og giftist honum. Allt gengur vel og þau eignast dóttur. Eftir það fer að halla undir fæti. Maðurinn sem hún elskar breytist úr umhyggjusömum eiginmanni í villidýr sem lemur hana og heldur framhjá henni. Hún flýr með dóttur sína en skuggi eiginmannsins fylgir henni. Loks fær hún nóg og snýst til varnar. Hér er á ferðinni afskaplega þunn spennumynd með götuóttu handriti. Myndin er fyrirsjáanleg frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu. Leikararnir hafa ekki úr miklu að moða og verða vandræðanlegir fyrir vikið. Sumar persónurnar eru óþarfar og skrifaðar til uppfyllingar. Hér er á ferðinni slöpp spennumynd sem minnir of mikið á kvikmyndina Sleeping with the enemy með Juliu Roberts, en sú mynd hafði allt það sem þessi mynd hefur ekki.
Mynd sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Stórkostleg! Spenna er yfirþyrmandi allan tíman og allir ættu að sjá mynd þessa.
Jennifer Lopez sýnir loks hversu góð leikkona hún getur verið og sannar sig í þessari mynd með glæsilegum árangri! Þessi mynd vantar ekkert.
Ekki láta hana sleppa frá þér!
Ég var ekkert að koma mér allt of vel fyrir þegar ég settist í sætið mitt í bíósalnum, bjóst við því að hlaupa út þá og þegar sökum þess að Jennifer Lopez og allt sem frá henni kemur hafði þar til verið mér sem ískur á krítartöflu, blautir vettlingar... einfaldlega andstyggð. Ég hafði ekkert álit á henni sem leikkonu, hvað þá söngkonu.
Það kom mér mikið óvart hvað hún fór vel með þetta. Myndin náði sér afskaplega vel á strik þegar síga fór á seinni hlutann, fyrri hlutinn hafði verið dálítið svona... hm. Maður var látinn bíða full lengi eftir því að hún hætti að væla.
Það hefði þó mátt gera miklu meira úr bardagaatriðunum og öllum þeim hluta í heildina, látið hana nota flottari tækni, auk þess sem kaflinn þegar hún var að æfa tæknina virkaði ekki mjög vandaður og maður fékk dálítið á tilfinninguna að sumir hefðu verið að flýta sér.
Að lokum verð ég að minnast á það hvað litla stelpan hennar fór í pirrurnar á mér, hún talaði á háa c allan tímann!
Hárgreiðslan hennar Jennifer er ljót, lagið Alive er leiðinlegt en að öðru leyti er þetta fínasta spennumynd.
Um myndina
Leikstjórn
Handrit
Framleiðandi
Sony Pictures
Vefsíða:
Aldur USA:
PG-13
Frumsýnd á Íslandi:
11. október 2002
VHS:
9. apríl 2003