Nostalgían
Fyrir mig sem var bara pjakkur þegar ég upplifði þessa tíma að þá man ég eftir lyktinni úr verbúðinni. Þetta er mjög flottir þættir, þeir eru fræðandi og fyndnir, meira svona you ha…
Íslensk þáttaröð sem gerist á árunum 1983-91.
Skráðu þig inn og gefðu nokkrum myndum einkunn til að fá persónulega einkunn.
Skráðu þig inn →Íslensk þáttaröð sem gerist á árunum 1983-91. Vinahjón gera upp gamlan togara og fara í útgerð. Allt gengur vel þar til kvótakerfið kemur til sögunnar og setur líf hjónanna sem og allra landsmanna í uppnám.
RÚV
1Jón Hjaltalín, bæjarstjóri í smábæ á Vesturlandi, og Torfi, bróðir hans, áforma að kaupa gamlan togara og hefja útgerð. Þegar bankamenn frá Reykjavík mæta á svæðið til að ganga frá samningnum kemur þó babb í bátinn.
2Ári síðar er landið allt í lamasessi vegna verkfalls fiskveiðimanna. Harpa og Grímur eru á milli steins og sleggju og verða að velja á milli þess að gerast verkfallsbrjótar eða drukkna í skuldum.
3Vinahjónin, ásamt Jóni Hjaltalín, grípa til örþrifaráða til að laga kvótakerfið að þörfum sínum. Á meðan heldur baráttan um eignarhaldið á fiskinum áfram í bæjarfélaginu.
4Smári, rannsóknarblaðamaður frá Reykjavík, vinnur að grein um Hörpu og leitar að vísbendingum um tengsl hennar við Jón Hjaltalín.
5Harpa og Grímur ganga á fund forsætisráðherra í von um að fá aukinn kvóta til að halda útgerðinni gangandi. Tinna snýr aftur til bæjarins og hefur sín eigin áform.
6Hjónaband Hörpu og Gríms er í uppnámi. Á meðan þau vinna í sínum málum sendir Harpa Einar og Freydísi um landið í leit að smærri bátum til að kaupa. Smári er enn með Hörpu undir smásjánni.
7Teymið hittist allt til að gera upp málin yfir aðeins of mörgum drykkjum.
8Bærinn er í uppnámi eftir nýjustu atburði og allra augu beinast að Hörpu. Á sama tíma mætir Smári á svæðið.
Skráðu þig inn til að skrifa álit
InnskráFyrir mig sem var bara pjakkur þegar ég upplifði þessa tíma að þá man ég eftir lyktinni úr verbúðinni. Þetta er mjög flottir þættir, þeir eru fræðandi og fyndnir, meira svona you ha…

