Love at First Bark
2017
Þegar allt gengur upp ...
84 MÍNEnska
Innanhússhönnuðurinn Julia Galvins hefur enga reynslu af hundahaldi en ákveður samt að taka að sér heimilislausan hund sem hún sér á hundasýningu og fellur fyrir. En reynsluleysið segir fljótlega til sín og til að bjarga málunum ákveður hún að leita til hundaþjálfarans Owens Michaels. Því er ekki að neita að þegar þau Julia og hundaþjálfarinn Owen... Lesa meira
Innanhússhönnuðurinn Julia Galvins hefur enga reynslu af hundahaldi en ákveður samt að taka að sér heimilislausan hund sem hún sér á hundasýningu og fellur fyrir. En reynsluleysið segir fljótlega til sín og til að bjarga málunum ákveður hún að leita til hundaþjálfarans Owens Michaels. Því er ekki að neita að þegar þau Julia og hundaþjálfarinn Owen hittast í fyrsta skipti byrjar nánast samstundis að neista á milli þeirra enda eru þau bæði á lausu. Það er hins vegar ekki fyrr en Julia tekur að sér að hanna nokkurs konar hundasnyrtistofu og tilheyrandi aðstöðu fyrir hunda að hlutirnir fara að gerast því til að allt verði örugglega vel gert ákveður hún á ný að leita til Owens. Þar með upphefst ástarævintýri á milli þeirra þar sem þau komast þau að því að þau eiga mun meira sameiginlegt en áhuga á hundum ...... minna