Fjöldamorðinginn Jed Sawyer, sem síðar varð þekktur sem Leðurfés er hér unglingur, og sleppur úr geðspítala ásamt þremur öðrum stórhættulegum vistmönnum. Þeir ræna ungum kvenkyns hjúkrunarfræðingi og fara með hana í hrollvekjandi ferðalag. Á hælum þeirra er lögreglumaður sem vill koma fram hefndum, eftir að dóttir hans var myrt á hrottalegan hátt.