Fyrsta stiklan úr Málmhaus, nýjustu mynd Ragnars Bragasonar var frumsýnd nú í kvöld. Myndin fjallar um Heru Karlsdóttur sem í æsku sinni er áhyggjulaus í sveitinni þar til harmleikur dynur yfir. Eldri bróðir hennar deyr af slysförum og Hera kennir sjálfri sér um dauða hans. Í sorginni finnur hún sáluhjáp í þungarokki og dreymir um að verða rokkstjarna.
Sjáðu stikluna hér fyrir neðan:
Með helstu hlutverk fara Þorbjörg Helga Dýrfjörð, sem leikur Heru, Ingvar E. Sigurðsson og Halldóra Geirharðsdóttir.
Leikstjóri er Ragnar Bragason.
Myndin verður heimsfrumsýnd núna á laugardaginn, 7. september á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto í Kanada.
Hún verður frumsýnd á Íslandi 11. október nk.