Tökur eru hafnar á „framhaldi“ hinnar sígildu bresku rómantísku gamanmyndar Love Actually. Um er að ræða 10 mínútna þátt sem tekinn er upp fyrir breska Comic Relief. Í þættinum koma allir helstu leikarar myndarinnar saman á ný.
Eins og sést í myndbandi hér neðar á síðunni þá hófu þeir Liam Neeson og Thomas Brodie-Sangster leik á South Bank í London, en þeir leika feðgana Daniel og Sam.
Emma Freaud, stjórnandi Dags rauða nefsins, deildi myndum af tökunum á Twitter.
#rednosedayactually shoot. Day 1. Yum. pic.twitter.com/G7ihyTViw1
— emma freud (@emmafreud) February 16, 2017
So this just happened. #rednosedayactually day 1 of filming. Might have cried a tiny bit. pic.twitter.com/DQ3GxNSwLp
— emma freud (@emmafreud) February 16, 2017
Aðrir leikarar, þau Keira Knightley, Hugh Grant, Martine McCutcheon, Colin Firth, Bill Nighy og Andrew Lincoln eru einnig talin munu leika í þættinum, sem ber heitið Red Nose Day Actually. Í þættinum verður skoðað hvað persónur myndarinnar eru að gera í nútímanum, árið 2017.
Þátturinn verður sýndur á Degi rauða nefsins á BBC þann 24. mars nk.
Richard Curtis leikstjóri upprunalegu myndarinnar segir að honum sjálfum hafi aldrei dottið í hug að búa til framhald af myndinni. „…. en mér fannst það skemmtileg hugmynd að gera 10 mínútna mynd, til að sjá hvað fólkið væri að gera í dag.
Hver ætli hafi elst best? – Ætli það sé ekki stóra spurningin … eða er það ekki bara Liam?“
Kíktu á myndbandið hér fyrir neðan: