Margar leikkonur hafa lýst sig sammála orðum George Clooney um að aðalhlutverk í kvikmyndum verði endurskrifuð í auknum mæli fyrir konur.
Nicole Kidman telur að fleiri handrit frá konum þurfi einnig að komast að í Hollywood.
„Ég hef óskað eftir því að hlutverk fyrir karla verði endurkrifuð fyrir konur en við þurfum einnig að segja fleiri sögur af konum,“ sagði Kidman á ráðstefnunni Women In The World í London.
Hún telur að áhorfendur þurfti að taka þátt í að efla hlut kvenna í kvikmyndum. „Við þurfum að kaupa miða, krefjast þess að fá sögur og bregðast við þeim og þá fáum við fleiri sögur.“