Ian McKellen hefur staðfest að hann muni leika í væntanlegri The Hobbit mynd, en eins og flestir vita þá ,,tengist“ hún Lord of the Rings þríleiknum. Ian McKellen mun leika Gandálf hinn gráa (e. Gandalf), sama hlutverk og í LOTR.
„Tja..ég er ekki búinn að fá samninginn en gefur það ekki augaleið að ég muni leika Gandelf? Það ganga allir að því vísu sem ég hef talað við þannig að já, ég staðfesti það hérmeð. Þó svo að myndin eigi ekki að koma út fyrr en 2011 þá er ég strax orðinn ótrúlega spenntur.“ sagði Sir Ian McKellen í viðtali.
Guillermo del Toro leikstýrir myndinni og verður hún jólamynd ársins 2011.